Velferð barna og unglinga

137. fundur
Föstudaginn 08. maí 1992, kl. 17:21:31 (6188)

     Jón Helgason :
    Herra forseti. Ég þakka allshn. fyrir góða afgreiðslu á þessari till. og jafnframt nota ég þetta tækifæri og beini því til hæstv. dómsmrh., sem væntanlega mun fá hana til meðferðar þegar Alþingi hefur afgreitt hana, að bregða skjótt við og skipa þá nefnd sem þarna er fjallað um svo ekki verði dráttur á því að hún taki til starfa.