Páll Pétursson (andsvar) :
Herra forseti. Ég sætti mig prýðilega við að kalla þennan flugvöll Árnanesflugvöll áfram, Árnanes er eins og kom fram í síðustu ræðu gamalt höfuðból og frægt í sögu og þaðan var graðhesturinn Blakkur og ekki nema gott um það að segja að það nafn lifi áfram, jafnvel þó jörðin sé komin í eyði.
Það er rétt sem hv. 3. þm. Austurl. sagði áðan um það þegar teknir voru peningar sem ákveðið hafði verið að nota í þverbraut á Hornafirði og fyrir þá lagt bundið slitlag á flugvöllinn í Vestmannaeyjum. Ég átti þátt í þeirri ákvörðun og er ánægður að hafa gert það því ég held hún hafi verið rétt í sjálfu sér þó þar væri ekki með öllu farið að gildandi flugmálaáætlun. Það var skynsamleg notkun á fjármununum og kom í mjög góðar þarfir í Vestmannaeyjum. Mér finnst meginatriðið vera að í Hornafirði er ein mjög góð flugbraut með bundnu slitlagi. Þar var gert nýmæli nokkurt við gerð slitlagsins sem mér skilst að hafi tekist vel og komið vel út og það gæti verið lausn og er reyndar lausn sem verið er að fara inn á á fleiri flugvöllum.
Það er ákaflega ánægjulegt að þetta blómlega og góða hérað býr við góðar flugsamgöngur og það er meginatriðið. Fjöllin, herra forseti, eru hins vegar jafnhá og þau voru áður og byljirnir jafnhvassir þannig að sú þverbraut sem hv. 3. þm. Austurl. er að leggja sérstaka áherslu á kemur ekki að því gagni sem menn
hefðu helst vonað þó lögð yrði.