Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Það kom fram á þinginu í síðustu viku að þingmenn Alþb. hafa beðið í vetur um þrjár skýrslur og samkvæmt þingsköpum er skylda að ræða þessar skýrslur ef nægilegur fjöldi þingmanna stendur að beiðninni. Það var í öllum þessum tilvikum. Við höfum beðið í u.þ.b. sjö mánuði eftir því að hér fari fram umræða um skýrslu um iðnaðarmál og við höfum einnig beðið í sjö mánuði eftir því að hér fari fram umræða um skýrslu um málefni aldraðra.
Verkstjórnin hjá hæstv. forsrh. er þannig að þeir ráðherrar sem þarna áttu hlut að máli skiluðu ekki sínu verki fyrr en u.þ.b. hálfu ári eftir að beðið var um þessar tvær skýrslur. Engu að síður er það þannig að samkvæmt lögum landsins er skylda að láta þær koma til umræðu. Þriðja skýrslan var skýrsla um stöðu sjávarútvegsins og störf nefndar ríkisstjórnarinnar að stefnumótum í málefnum sjávarútvegsins, einkanlega í ljósi þess að nefndaformennirnir tveir hafa talað með gjörólíkum hætti opinberlega á undanförnum vikum. Til þess að koma til móts við ríkisstjórnina í þessum efnum opnuðum við á þann möguleika að sú skýrsla yrði flutt munnlega hér í þinginu af hæstv. sjútvrh. Eftir ítrekaðar óskir okkar í síðustu viku var þessi skýrsla, sú fyrsta af þremur, sett á dagskrána í gær. Hæstv. sjútvrh. flutti greinargóða og glögga ræðu sem þeir, sem þátt tóku í umræðunni, þökkuðu fyrir vegna þess að hún var fyllilega með eðlilegum hætti og ber að þakka fyrir það. Hins vegar tókst ekki að ljúka því í gær, vegna takmarkana á tíma, að fulltrúar allra flokka gætu greint frá sjónarmiðum sínum. Umræðunni var hætt og fundi slitið klukkan fjögur, áður en fulltrúi Kvennalistans hafði getað tekið þátt í umræðunni, hvað þá heldur að aðrir þingmenn, sem á mælendaskránni voru, hefðu getað tekið þátt í umræðunni eða hæstv. forsrh. og hæstv. sjútvrh. gætu svarað þeim spurningum og athugasemdum sem til þeirra var beint, m.a. frá hv. þm. Halldóri Ásgrímssyni.
Ég átti þess vegna von á því, virðulegi forseti, að þessi skýrsla um sjávarútvegsmál yrði á dagskrá í dag og haldið yrði áfram með þá umræðu eftir að búið væri að afgreiða nokkur mál einkum í ljósi þess að fulltrúum allra flokka hafði ekki verið gefinn kostur á að tala í umræðunni í gær og nauðsynlegt var að ríkisstjórnin skýrði sína afstöðu í þessu höfuðmáli áður en þingi lyki.
Ég vil þess vegna spyrja virðulegan forseta að því hverju það sæti að umræðunni er ekki haldið áfram í dag heldur er hætt í miðjum klíðum og flokkum mismunað með þeim hætti sem ég hef hér lýst. Ég vil einnig spyrja hvernig forsetaembættið hefur hugsað sér að fara með þessa umræðu.
Ég var fyrsti beiðandi þessarar skýrslu og tel þess vegna að eðlilegt að ég inni eftir þessu áður en lengra er haldið störfum þingsins en vil eindregið mótmæla því, virðulegi forseti, að þessari umræðu sé ekki fram haldið í dag. Ég vil vekja athygli forsetaembættisins á því að samkvæmt lögum landsins, gildandi þingsköpum, ber forsetaembættinu að tryggja að þingleg umræða fari fram um þær skýrslur sem nægilegur fjöldi þingmanna hefur beðið um en eins og ég hef þegar greint frá er það í öllum þessum þremur tilvikum að nægilegur fjöldi þingmanna hefur beðið um skýrslurnar.
Ég óska þess vegna eftir því að af forsetastóli verði greint frá því hvers vegna framhald þessarar umræðu er ekki á dagskrá í dag og hvenær hæstv. forseti hyggst halda henni áfram.