Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vil líkt og áður þakka hæstv. utanrrh. fyrir að hafa svarað skýrt þó að ég sé ósáttur við þá stefnu sem fram kemur í svörunum. Hæstv. utanrrh. lýsti því afdráttarlaust yfir að aðstoðarmaður hans, Þröstur Ólafsson, fulltrúi Alþfl. í nefnd ríkisstjórnarinnar um málefni sjávarútvegsins, hefði í stórum dráttum verið að túlka stefnu Alþfl. varðandi skipulagsvanda sjávarútvegsins og lausn á honum. Þar með er orðið greinilegt hér í umræðunum í kvöld, í ljósi svara hæstv. forsrh. og svara hæstv. utanrrh. að ríkisstjórnin hyggst ekki grípa til neinna sérstakra aðgerða umfram það sem nú þegar er búið að gera varðandi þann 4 milljarða kr. vanda sem blasir við í taprekstri fiskvinnslu og sjávarútvegs á Íslandi á næstu mánuðum og næsta vetri. Það eru skýr skilaboð til bankanna, til eigenda fyrirtækjanna, til launafólksins og til byggðarlaganna. Með öðrum orðum, þessir aðilar, sveitarfélögin, bankarnir, sjóðirnir, eigendur fyrirtækjanna, verða sjálfir að taka á sig þetta 4 milljarða tap, með því atvinnuleysi og hruni fyrirtækja sem það hefur í för með sér.
Þetta er alveg skýrt. Hins vegar tel ég að þetta sé ekki skynsamleg leið. Ég hef talið að þau sjónarmið sem Magnús Gunnarsson talaði fyrir í Mbl. sunnudaginn 26. apríl séu vænlegri leið. Mér fannst þar koma fram raunhæfari og skynsamlegri sjónarmið en ég heyri hér í kvöld að hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh. eru á annarri skoðun.