Rekstrarvandi sjávarútvegsfyrirtækja

142. fundur
Miðvikudaginn 13. maí 1992, kl. 00:39:36 (6378)


     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Aðeins örstutt. Ég skal ekki ganga eftir svari við þriðju spurningunni. En ég vil í framhaldi af svari við spurningunni um endurskoðun á kvótafyrirkomulagi á innfjarðarækju spyrja hæstv. ráðherra hvort markmið þeirrar endurskoðunar, sem hann telur eðlilegt að hefja, sé það að viðhafa sams konar kvótakerfi þar og tíðkast á öðrum botnfiski.