Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegi forseti. Hæstv. forsrh. lýsti í umræðum á mánudagskvöldið reynslu sinni og viðhorfi til þingstarfa og starfa alþingismanna. Forsrh. skírskotaði til þess að hann hefði einungis reynslu af eins vetrar starfi á þingi. Það er rétt. Nú hefur sá sem hér talar ekki mikið meiri þingreynslu. Þetta er þó annar veturinn sem ég sit á þingi. En sá sem hér talar hefur þó eitt fram yfir hæstv. forsrh. Ég hef tekið þátt í nefndastörfum Alþingis í tvo vetur og það rennur allt í einu upp fyrir manni það ljós að þegar hæstv. forsrh. er að lýsa viðhorfum sínum til Alþingis talar hann ekki af meiri reynslu en svo að hann hefur aldrei tekið þátt í nefndastörfum á vegum Alþingis sem er e.t.v. einhver mikilvægasti þátturinn í löggjafarstarfinu. Ég er þess fullviss, og þetta vil ég segja við hæstv. ráðherra í mikilli vinsemd, að ef hæstv. forsrh. hefði haft tækifæri til þess og gefið sér aðeins meiri tíma áður en hann kaus að fara í forustu fyrir Sjálfstfl. og kynnst raunverulega störfum Alþingis, kynnst störfum í nefndum þar sem unnið er sameiginlega af fullum heilindum af stjórn og stjórnarandstöðu, þá hefðu ummæli hans á mánudagskvöldið var verið í eilítið aðra veru. Og það er vægast sagt óþolandi fyrir almenna þingmenn að þurfa að sitja undir slíkum ákúrum eins og þar komu fram. Það lýsir engu öðru en því að vegna reynsluleysis síns af störfum Alþingis virðist hæstv. forsrh. hafa á tilfinningunni að löggjafarvaldið sé að þvælast fyrir framkvæmdarvaldinu, það tefji fyrir framgangi mála, hæstv. ríkisstjórn geti ekki rennt málum í gegnum Alþingi rétt eins og á færibandi.
Vissulega er það svo að það fer í taugarnar á ríkisstjórn á hverjum tíma að Alþingi vilji taka sér tíma til þess að gaumgæfa mál. En ég man aldrei eftir því fyrr að forsrh. hafi á opinberum vettvangi lýst svo greinilega gremju ríkisstjórnar á því að Alþingi vilji taka sér tíma til þess að skoða mál og fjalla um brennandi mál á hverjum tíma í þjóðlífinu.
Framhald umræðna um skýrslu Byggðastofnunar, ummæli forsætisráðherra um þingstörf o.fl.
143. fundur
Miðvikudaginn 13. maí 1992, kl. 14:21:33 (6426)