Ólafur Ragnar Grímsson :
Virðulegi forseti. Því er ekki að neita að þetta mál er nokkuð sérkennilegt og mér finnst það bera nokkurn keim af því að hæstv. ríkisstjórn hafi of seint áttað sig á því að það var tilefni til verulegra hátíðahalda að Halldór Laxness varð 90 ára og satt að segja undraði mig hvað ýmsir forustumenn ríkisstjórnarinnar létu það mál lítið til sín taka. Þá grunar mig að á síðustu stundu hafi verið gripið til þess, til að stjórnvöld væru ekki alveg utan garðs á þessum merka hátíðisdegi íslenskrar menningar, að vera aðili að þessari ákvörðun eins útgáfuforlags.
Það dæmi sem hæstv. ráðherra tók hér annað til réttlætingar er af allt öðru tagi. Þar er um að ræða viðurkenningu sem veitt er eftir á og m.a. höfundum sem eru gefnir út af öðrum forlögum en því sem á hlut að máli í því dæmi sem hæstv. ráðherra tók. Það er mjög mikilvægt að ef stjórnvöld beita sér með þessum hætti verði það ekki til þess að mismuna aðilum í bókaútgáfu í landinu, en eins og hér hefur rækilega verið bent á af hv. þm. Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur eru yfirgnæfandi líkur á því að þessi háttur leiði til þess að þetta tiltekna forlag, sem er að vísu mjög gott og virðulegt forlag, dragi til sín rjómann af ungum rithöfundum og þannig sé ráðuneytið að skekkja samkeppnisstöðu aðila í útgáfu á Íslandi. Er það dálítið merkilegt á sama tíma og það er stefna ríkisstjórnarinnar að leggja niður bókaforlag ríkisins að þá skuli það taka sér fyrir hendur að mismuna einkaforlögunum með þessum hætti.