Stefán Guðmundsson (um atkvæðagreiðslu) :
Virðulegi forseti. Ég held að við þingmenn hljótum að geta fallist á að skynsamlegt sé eins og ástatt er að þessu máli sé vísað til nefndar, en ég hefði hins vegar haft áhuga á því að hér væri staddur hæstv. félmrh. og gæti svarað okkur því hvort það væri virkilegt að við værum búin að gefast upp að halda því atvinnustigi sem verið hefur í landinu. Ætlum við að ganga út frá því sem tryggðu og gefnu að þessi ríkisstjórn sé búin að innleiða 6--8% atvinnuleysi?