Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Áður en umræða hefst um þetta mál vildi ég beina þeirri fsp. til forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar hvort það er rétt, sem heyrst hefur hér í hliðarsölum þingsins, að þeir séu að hugleiða að breyta frv. í einhverjum atriðum við 3. umr. Það er mjög mikilvægt að fá það fram áður en umræða hefst ef ætlunin er að taka tillit til þeirra ábendinga sem fram hafa komið, ekki bara hér á Alþingi heldur einnig með óvenjulega skýrum hætti í leiðara Morgunblaðsins í dag, með óvenjuskýrum hætti frá forustumönnum samtaka stúdenta, bæði Vöku og annarra samtaka, og í nýlegri ályktun sem verkamannafélagið Dagsbrún gerði í morgun og ég veit ekki hvort hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh. er kunnugt um. Verkamannafélagið Dagsbrún ályktaði um það í morgun að skora á Alþingi að leiðrétta og lagfæra það ákvæði sem um getur í 6. gr. frv.
Það er alveg ljóst að það er óvenjulega breið fylking utan þings og innan sem óskar eindregið eftir því að þessu ákvæði sé breytt. Við erum ekki úrkula vonar um að hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh. sem oddvitar þessarar ríkisstjórnar kunni að hafa forgöngu um að breyta þessu ákvæði. Ég vildi þess vegna spyrja um það áður en umræða hefst samkvæmt mælendaskrá hvort það er til umræðu innan ríkisstjórnarflokkanna að breyta þessu ákvæði. Ég er ekki að spyrja um hvort búið sé að taka ákvörðunina um að breyta því, en ef það er hins vegar ákvörðun um að breyta því ekki og það liggur fyrir mun umræðan taka mið af því.