Lánasjóður íslenskra námsmanna

145. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 15:39:00 (6539)


     Guðrún Helgadóttir (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir að sú breyting er á orðin að menntmn. mun koma saman og ég treysti því að til þess fundar, sem hún ætlar nú að halda, verði kallaðir fulltrúar bankakerfisins sem umboð hafa til að ganga frá því svo að óyggjandi sé að bankarnir ætli að annast þá þjónustu við námsmenn sem þetta nýja frv. krefst. Og ég þakka fyrir að þessi nefndarfundur er nú haldinn.