Umboðsmaður barna

145. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 16:52:15 (6558)

     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég hef mjög verið spurð: Hvers vegna var þetta frv. til laga um umboðsmann barna ekki samþykkt meðan við vorum í ríkisstjórn? Ég held að hv. 5. þm. Reykv. hafi svarað þessari spurningu. Þrátt fyrir 18 þingmenn úr þingliði Sjálfstfl. sem flytja með honum mál næst ekki málið út úr nefnd. ( IBA: Stjórnarliðsins.) Stjórnarliðsins, já, ég bið afsökunar, það er líka Alþfl. Ég held að ég geti alveg svarað þingmanninum. Ég held að stjórnarliðið langi hvorki til að afgreiða mál frá honum né mér.