Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara að munnhöggvast sérstaklega við hv. þm. Össur Skarphéðinsson út af þessu máli. Tilefni þessarar umræðu var að hv. þm. Ingi Björn Albertsson vakti athygli á að hann hefði flutt tillögu sem yfir 20 þingmenn eru flm. að og sem hv. þm. flutti með honum og lýsti þeirri skoðun sinni, sem ég held að sé rétt, að það sé yfirgnæfandi meiri hluti fyrir afgreiðslu þessa máls hér í þinginu. Ég fór þá að spyrja um það hvernig á því stæði að málið er ekki afgreitt út úr nefndinni. Og ef hv. þm. Össur Skarphéðinsson getur fullvissað mig um að málið verði afgreitt út úr nefndinni er það gott og vel. Ef hann er hins vegar að segja að það sé sjálfsagt að einhverjir fjórir til fimm þingmenn í nefnd geti komið í veg fyrir að meiri hluti þingsins fái að samþykkja hér mál sem meiri hlutinn vill samþykkja eru það fullkomlega óeðlileg vinnubrögð. ( ÖS: Ég hef ekki sagt það.) Nei, gott og vel. Þá hefur hv. þm. ekki sagt það. Þá liggur beint fyrir að afgreiða út úr nefndinni það mál sem hv. þm. Ingi Björn Albertsson er 1. flm. að. Þá þurfum við ekkert að deila neitt meira um þetta, hv. þm. Össur Skarphéðinsson. (Gripið fram í.) Mjög gott. Þessi umræða hefur þá verið gagnleg ef það leiðir til þess að þetta ágæta frv., sem hv. þm. Ingi Björn Albertsson er 1. flm. að, verður hér afgreitt, mjög gott. En það hefur greinilega þurft eitthvað til. Ég mun fylgjast mjög náið með því næstu daga hvort þetta frv. verður afgreitt. Og ég fullvissað hv. þm. Össur Skarphéðinsson um að það skortir ekkert á að ég fylgist vel með þingstörfum. Ég hugsa meira að segja að honum finnist ég fylgjast of vel með.