Ólafur Ragnar Grímsson (um þingsköp) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. Valgerður Sverrisdóttur hefur skýrt einfaldlega frá því sem rétt og satt er í þessum efnum og það sama og ég sagði áðan þannig að hæstv. menntmrh. fór einfaldlega með rangt mál hér. ( Menntmrh.: Ég fór með allt rétt.) Ja, það hefur komið fram hjá hv. þm. Valgerði Sverrisdóttur að það hafi ekkert verið samið um að hætta umræðunni og slíta hana í sundur þegar tveir tímar væru liðnir.
Annars er það sérkennilegt að sjá hæstv. forsrh. sitja í hliðarherbergi og hlæja. Hann er ekki maður til að sitja hérna í salnum og hlusta á umræður og svara fyrir sig. En hann er maður til að sitja í hliðarherbergjum og stjórna þinginu með höfuðhreyfingum og hlægja. Hann hefur verið borinn þeim sökum hér
af hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni að fara með rangt mál, svo ég vitni í hv. þm. Ólaf Þ. Þórðarson, að skrökva að þjóðinni í útvarpsumræðum. Og hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson hefur fært ærin rök fyrir því. En hæstv. forsrh. er þannig gerður að hann situr undir því í hliðarherbergjum, er ekki maður til að svara fyrir sig. Þá stendur það eftir að hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson hefur farið með rétt mál. Forsrh. hefur með þögninni ekki þorað að hrekja það. Það er mjög alvarlegt ef hæstv. forsrh. leyfir sér að nota ræðustól á Alþingi til að skrökva að þjóðinni. Merkilegt að hæstv. forsrh. er eini maðurinn sem hlær hérna. En það er rétt að hæstv. menntmrh. fór að hlægja með honum þegar hann sá að það var neyðarlegt að hæstv. forsrh. hló einn.
Virðulegi forseti. Það hefur komið fram að hæstv. menntmrh. fór með rangt mál, það var ekki samið um að slíta umræðuna í sundur. Og þessi vinnubrögð ríkisstjórnarmeirihlutans eru auðvitað í stíl við annað.