Geir H. Haarde (um þingsköp) :
Hæstv. forseti. Það hefur margoft komið fram í dag að um þetta mál var gert samkomulag fyrst í gær og síðan aftur í dag. Það hefur legið í loftinu að tveir þingmenn hugsuðu sér að virða ekki það samkomulag. Annar þeirra gerði strax grein fyrir því í þingsalnum í gær. En þá geta ekki þessir sömu þingmenn gert þá kröfu að það sé eitthvert samkomulag við þá um að halda umræðunni áfram. Þetta var rætt á fundi þingflokksformanna í dag. Þá kom fram bæði af minni hálfu og annarra að ef þessir tveir tímar dygðu ekki til væri engin sérstök ástæða til að umræðan héldi óslitið áfram heldur væri hægt að fara í önnur mál á dagskránni og taka til við þetta mál síðar í kvöld þegar þinginu hefði gefist tími til að vinna að öðrum málum sem eru ærin á dagskrá. Það er kannski ekki hægt að segja að þetta hafi verið formlegt samkomulag, en þetta er sá skilningur sem ég lagði í niðurstöðu fundarins með sama hætti og hæstv. menntmrh. og ég tel ekki að túlkun hv. þm. Valgerðar Sverrisdóttur á þessu sé neitt efnislega frábrugðin.