Ólafur Ragnar Grímsson :
Virðulegi forseti. Ef það er virkilega ætlun hæstv. forseta að halda áfram með umræður um þetta mál? Ég bið forseta að endurskoða það en ef það er virkilega ætlunin, þá óska ég eftir því að hæstv. forsh. sem ber ábyrgð á byggðamálum verði viðstaddur þessa umræðu og ég óska eftir því að hæstv. félmrh. sem ber ábyrgð á sveitarstjórnarmálum og hagsmunum þeirra verði viðstaddur þessa umræðu. Skipaútgerðin hefur tengst hag sveitarfélaganna og byggðamálum um áratugaraðir og ef forsetadæmið ætlar að haga sér svona og knýja fram umræður verða það að vera fullgildar umræður, virðulegi forseti. Eins og hér hefur komið fram áður er þjóðþingið sá vettvangur þar sem ríkisstjórnin á að standa reikningskil gerða sinna. Það er enginn annar vettvangur í þessu þjóðfélagi en þjóðþingið þar sem ríkisstjórnin á að standa fyrir máli sínu og rökræða við þjóð og þingheim. Það er m.a. fest í sessi með þeim hætti að koma því þannig fyrir að þeir menn sem gegna ráðherrastöðum en eru ekki kjörnir þingmenn eigi jafnframt seturétt á Alþingi til þess að þingið geti rætt við þá. Það gengur auðvitað ekki að núv. hæstv. ríkisstjórn eða núv. forseti hagi málum þannig hér á Alþingi að það geti ekki farið fram fullburðug umræða um málin. Ef það er ætlun forsetans að láta hana fara fram hér í nótt er nauðsynlegt að þeir ráðherrar sem hlut eiga að máli mæti hér og umræðan haldi ekki áfram fyrr en þeir eru mættir. Eitt er nú það að leyfa sér að halda áfram fundi eftir 14 klukkustundir og komin er nótt, en það gengur ekki að leyfa sér að taka fyrir ný mál af þessari stærðargráðu án þess að viðkomandi ráðherrar mæti hér. Það er ósk mín til forseta, ef hann ætlar virkilega að halda áfram með málið, að umræðunni verði frestað þangað til þeir ráðherrar sem ég hef óskað eftir séu komnir í hús.