Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Ég vildi vekja athygli forsetans á því að um það bil 20 alþingismenn munu vera á sameiginlegum fundi tveggja nefnda þingsins sem stendur yfir nú. Ég veit það vegna þess að ég fékk símhringingu frá einum þeirra fyrir nokkrum mínútum og það kom þeim mjög á óvart að þetta mál var komið til umræðu. Ég spyr því forsetann: Er virkilega ætlunin að halda áfram umræðum hér þannig að það sé happa- og glappakennt hvaða mál eru tekin fyrir og um það bil 20 þingmenn eru að nefndastörfum í öðru húsi? Það hefði einhvern tíma þótt óeðlilegt að starfrækja þingið hér þannig að þriðji hluti þingmanna sé bundinn við önnur störf annars staðar. Ég vil biðja forsetann að athuga það gaumgæfilega áður en áfram er haldið hvað eigi að gera.
Ég heyri að hæstv. fjmrh. kallar fram í: Er hann nýr hérna þessi? ( Fjmrh.: Ég var ekkert að tala við þig). Hann var kannski ekki að spyrja um mig. Það er nú gott og vel. Hann hefur kannski verið að horfa á 3. þm. Reykv.
En ég vil eindregið óska eftir því við hæstv. forseta að annaðhvort verði þá gert hlé á fundum þar til þessum nefndastörfum verði lokið eða þá að það verði rætt við þann þriðjung þingmanna sem er að nefndarstörfum um hvernig þeim verði haldið áfram. Mér finnst fullkomlega óeðlilegt að í svo langri dagskrá sem hér er sé farið með happa- og glappaaðferð fram og aftur í dagskránni þannig að ýmsir þingmenn sem höfðu hug á því að tala í þessu máli eigi ekki kost á því vegna þess að þeir eru bundnir við þingnefndastörf annars staðar og vissu ekki að þetta mál kæmi til umræðu nú.