Skipaútgerð ríkisins

146. fundur
Föstudaginn 15. maí 1992, kl. 11:28:19 (6638)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég hef heyrt þessa ræðu og brot úr henni áður í þessum þingsal og má að sönnu segja að það sé hálfþreytandi að þurfa stöðugt að svara hinum sömu rangfærslum og útúrsnúningum í sambandi við gang þessara mála og auðvitað fullkomlega út í hött að halda því fram að ég hafi gefið þinginu rangar upplýsingar varðandi gang þessara mála.
    En ég vil af þessu tilefni, hæstv. forseti, rifja upp það sem segir í upphafi Hrafnssögu hins sérstaka: ,,Atburðir margir þeir er verða falla mönnum oft úr minni, en sumir eru annan veg sagðir en verið hafa og trúa því margir er logið er, en tortryggja það sem satt er.``