Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
Herra forseti. Síldin kom og síldin fór og mestu vísindamenn okkar eiga litlar skýringar á hvað gerðist á rauða torginu fyrir austan. Mér er ljóst að síldin skapaði umsvif mikil í Árneshreppi á meðan hún var í Húnaflóa. Það gerði hún einnig á Siglufirði. ( GHelg: Hvert fór auðurinn?) Auðurinn hefur að sjálfsögðu farið á ýmsa vegu. Hann fór m.a. líka til íslenskra námsmanna sem áttu þá kost á því að vinna sér inn miklar tekjur yfir sumartímann. Það var vissulega fyrir þrældóm, það er rétt, það var unnið mikið. En ég ætla bara að segja það varðandi þetta: Þannig standa mál að á Alþingi Íslendinga sitja 63 þingmenn. Þeirra er ábyrgðin. Þeir geta ekki skotið sér á bak við neitt varðandi það að öflug félög séu í þessu landi sem menn hafa gefið ýmis nöfn. Þeirra er ábyrgðin og þess vegna verður að taka ákvörðun um hvað menn ætla að gera í vegamálum á Íslandi í framhaldi af þessari ákvörðun. Það er það sem blasir við og ég vil undirstrika. Það hefur verið sett stórfé í Skipaútgerð ríkisins. Eru menn reiðubúnir til að líta svo á að ef það fyrirtæki hefði starfað hefði það kostað ríkið mikla fjármuni og er þess vegna ekki réttlætanlegt að taka eitthvað af þeim fjármunum og nota þá til framkvæmda?