Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

147. fundur
Föstudaginn 15. maí 1992, kl. 22:22:33 (6724)


     Stefán Guðmundsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það er rétt, hæstv. forsrh., við þurfum örugglega ekki að deila um þetta. En að gefnu tilefni vil ég þó brýna hæstv. forsrh., vegna þess hversu skammt lifir þessa þings og ekki víst að það verði svo skjótt sem ég nái eyrum hans, að fylgjast grannt með því sem gerist nú bak við luktar dyr hinna ýmsu stofnana og banka hvað viðkemur þeim orðum sem hann lét hér falla, að menn standi þá þokkalega og sæmilega jafnir í þeim aðgerðum sem þar er verið að gera.