Atvinnuleysistryggingar

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 11:54:00 (6771)

     Frsm. heilbr.- og trn. (Sigbjörn Gunnarsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti heilbr.- og trn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 96/1990, um atvinnuleysistryggingar.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund Margréti Tómasdóttur, deildarstjóra í Tryggingastofnun ríkisins, fyrir hönd Atvinnutryggingasjóðs, Jón Magnússon, viðskiptafræðing á gjaldaskrifstofu fjármálaráðuneytis, og Ólaf Hjálmarsson, deildarstjóra í fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytis.
    Nefndin hefur kynnt sér fjárhagsstöðu sjóðsins og fullvissað sig um að sjóðurinn muni geta greitt út atvinnuleysisbætur fram yfir þann tíma að þing kemur saman að nýju. Af þessum sökum sé ekki nauðsynlegt að afla aukinna fjárheimilda fyrir sjóðinn nú auk þess sem Atvinnuleysistryggingasjóður getur leyst úr tímabundinni fjárþörf með sölu eigin skuldabréfa.
    Í trausti þess að greiðsla atvinnuleysisbóta sé þannig tryggð fram yfir þann tíma að Alþingi kemur saman að nýju mælir nefndin með því að frv. verði samþykkt.

    Undir þetta rita Sigbjörn Gunnarsson, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Svavar Gestsson, Guðmundur Hallvarðsson, Sigríður A. Þórðardóttir, Ingibjörg Pálmadóttir, Björn Bjarnason og auk þess Finnur Ingólfsson með fyrirvara.