Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Fulltrúi stjórnarliðsins Björn Bjarnason gerði það að nokkru atriði áðan að þær spurningar sem ég hefði borið fram væru ekki undir réttum dagskrárlið og þess vegna bæri ekki að taka þær alvarlega. Nú eru þær þó hins vegar tvímælalaust undir réttum dagskrárlið samkvæmt áliti þingmanns ríkisstjórnarinnar, virðulegi forseti. Hér er á ferðinni mikið alvörumál og ég óska eftir því að hæstv. forsrh., hæstv. fjmrh. og hæstv. félmrh. komi hér til umræðunnar. ( Forseti: Hæstv. forsrh. er ekki í húsinu.) Virðulegi forseti. Ef svo er að hæstv. forsrh. er ekki í húsinu þá óska ég eftir að þessari umræðu verði frestað þar til hæstv. forsrh. kemur. Í ljós hefur komið í ræðu hv. þm. Finns Ingólfssonar að sú vinna, sem lögð var í þetta mál í nefndinni, væri byggð á gamalli forsendu Þjóðhagsstofnunar um 2,6% atvinnuleysi en nýjar upplýsingar um 3% atvinnuleysi frá Þjóðhagsstofnun í gær eða fyrradag muni gera það að verkum að sjóðurinn verður fjárþrota hvað ríkisframlag snertir í ágúst eða september. ( Forseti: Forseti mun fresta þessari umræðu.) Já, þá geri ég hlé á ræðu minni, virðulegi forseti.