Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Mér þykir mjög leitt að þurfa sífellt að vera að gera athugasemdir við stjórn mála. En þannig er að sjútvn. er á fundi og þar eru tveir þingmenn Alþb., hv. þm. Jóhann Ársælsson og hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon. Mér er kunnugt um að þeir ætluðu sér báðir að vera viðstaddir umræðu um þetta mál og hv. þm. Jóhann Ársælsson bað mig sérstaklega um það í nótt þegar þingfundi lauk að tryggja það að ef ætti að taka á dagskrá Skipaútgerð ríkisins meðan sjútvn. yrði að störfum þá yrði annaðhvort gert hlé á störfum sjútvn. eða málið látið bíða.
Hæstv. forsrh. hristir höfuðið að venju. Hann hefur engan skilning á því að það eigi að taka tillit til mála hér í þinginu, hvað þá heldur að hæstv. forsrh. hafi neinn skilning á því að við erum að greiða fyrir afgreiðslu mála ríkisstjórnarinnar með því að fallast á að halda nefndarfundi meðan fundur í þinginu er í fullum gangi. Það er eins og hæstv. forsrh., virðulegi forseti, meti það einskis að við erum að sýna ríkisstjórninni þá samvinnulipurð að halda nefndarfundi meðan umræða er í gangi. Ef það er þannig að hæstv. forsrh. ætli að halda áfram að hæðast að því í hliðarherbergjum að við setjum fram þá eðlilegu ósk að þeir þingmenn, sem fallist hafa á að starfa í þingnefndum meðan umræður eru, fái að koma hingað þá veit ég ekki hvað við höldum þessu lengi áfram. Ég segi alveg eins og er, ég er ekki þannig skapi farinn að ég taki þátt í því að haldnir séu nefndarfundir til að greiða fyrir afgreiðslu frv. sem hæstv. sjútvrh. flutti í gær og svo hæðist forsrh. í hliðarherbergjum að því að maður óski eftir því að tveir af þessum nefndarmönnum geti fengið að vera viðstaddir, þó að ekki sé nú látið ógetið glottsins sem komið er á hv. þm. Björn Bjarnason svona samkvæmt venju. En þessir tveir menn, hv. þm. Björn Bjarnason og hæstv. forsrh., virðast vera að taka upp algerlega nýja siði hérna í þinginu. Ég vona að reyndari menn í þingflokki Sjálfstfl. fari að grípa í taumana og ég veit að hæstv. forseti er í þeim hópi. Ég verð, virðulegi forseti, vegna þess að ég var beðinn um það af þingmanni míns flokks sem er í sjútvn. að ef virkilega ætti að fara að taka fyrir þetta mál meðan nefndin væri að störfum þá yrði nefndin annaðhvort látin hætta sínu starfi eða beðið yrði með þetta mál. Ég ætlast til þess að ríkisstjórnarmeirihlutinn sýni þennan lágmarksskilning þegar við erum að fallast á það að láta nefndir starfa þegar þingfundur er í fullum gangi.