Skipaútgerð ríkisins

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 13:56:00 (6795)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Herra forseti. Eins og ég hef rakið nákvæmlega, ekki aðeins í dag heldur oft áður, þá liggur það fyrir að sú þjónusta sem er með ströndinni er í sumum tilvikum betri en hún var áður og í öllum tilvikum fullnægjandi svo það er ástæðulaust að hafa þessa heimild inni. Þess vegna segi ég nei.