Skipaútgerð ríkisins

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 13:58:00 (6796)


     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Herra forseti. Þar sem hér er búið að fella fyrri liðinn er ekkert við því að segja en í 2. lið er talað um að lög þessi öðlist gildi við áramót, þ.e. 31. des. nk. Ég skora á þingmenn að skoða það mál vel vegna þess að rekstur Skipaútgerðarinar er alls ekki hættur, hann er í gangi og mun trúlega verða langt fram á þetta ár. Ég sé því ekki hvers vegna lögin þurfa að öðlast gildi nú þegar. Ég segi já.