Skattskylda innlánsstofnana

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 15:53:00 (6811)

     Jón Helgason (andsvar) :
    Herra forseti. Það komu fram að mig minnir í máli hv. 6. þm. Norðurl. e., þegar hann flutti sína ræðu, nokkrar skýringar á þessu og mig minnir að ríkisbankarnir væru með um 0,1% af sinni veltu. Þar kemur kannski fram mismunurinn milli hlutafélagabankans og ríkisbankanna en mismunurinn milli þessara fjármálastofnana er hins vegar svo gífurlega mikill að það er erfitt að skýra hann allan með þessari einu ástæðu.