Áhrif samnings um Evrópska efnahagssvæðið á innflutning búvara

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 17:02:00 (6828)

     Halldór Ásgrímsson :
    Virðulegur forseti. Ég skal vera mjög fljótur. Ég óska eftir því að það verði upplýst, annaðhvort í þessari umræðu eða fyrir þingnefnd, hvort sem það er fyrir hv. landbn. eða hv. utanrmn., með hvaða hætti þessum skilningi ríkisstjórnarinnar hefur verið komið á framfæri. Það hlýtur að hafa verið gert annaðhvort með sérstakri bókun eða sérstöku bréfi. Ég trúi því ekki að fyrirvara eða bókun í svo mikilvægu máli sem þessu hafi verið komið á framfæri með almennum orðum. Því hlýt ég að óska þess í framhaldi af yfirlýsingu hæstv. viðskrh. að það verði upplýst hér hvernig það hefur verið gert og hvert orðalagið er.