Halldór Ásgrímsson
:
Herra forseti. Mér finnst nauðsynlegt að fá betri vitneskju um það hvernig á að haga þinghaldinu í dag. Ég veit ekki betur en hér standi yfir nefndarfundur í allshn. Fundur var boðaður kl. 11 í morgun en jafnframt var boðaður nefndarfundur í sjútvn. 20 mínútum fyrir 11 um mikið stórmál sem við viljum gjarnan greiða fyrir að nái fram að ganga. Síðan hefur sjútvn. verið boðuð til fundar kl. 11 í fyrramálið um það mál. Nokkrum mínútum síðar fékk ég fundarboð um að þessi nefndarfundur ætti að vera kl. 1. Það er náttúrlega alveg ljóst, hæstv. forseti, að það verður að komast á meiri vissa um tímasetningar í þessum málum vegna þess að við hv. þm. viljum að sjálfsögðu vera viðstaddir umræður um þessi mál. En ef verið er að breyta þessu fram og til baka mun það ekki verða til þess að þinghaldi ljúki með eðlilegum hætti. Ég hvet þingflokksformenn og forseta þingsins til að koma saman og reyna að koma einhverju skipulagi á þinghaldið. Mér sýnist að það sé afar lítið skipulag á því og það veit nánast enginn hvað hér á að taka fyrir eða hverju á að

reyna að ljúka á þessu þingi.