Tilhögun þinghalds

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 17:26:56 (6840)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseta er ljóst að það er ekki létt verk fyrir formenn nefnda þingsins að skipuleggja nefndastarfið svo mikið sem álagið er á þeim. En forseti er að sjálfsögðu tilbúinn til að greiða fyrir, eins og vera ber og hægt er, því að hér sé sem best skipulag á nefndastörfum og að nefndir starfi sem best að þeim mikilvægu málum sem unnið er í þinginu.