Ingibjörg Sólrún Gísladóttir :
Virðulegur forseti. Ég vil gera grein fyrir atkvæði mínu varðandi 17. gr. vegna þess að ég var of sein á mér áðan þegar greidd voru atkvæði um 6. tölul. 1. mgr. þessarar greinar. Þar kom sú atkvæðaskýring frá hv. 5. þm. Vestf. að rökin fyrir því að fella niður 6. tölul. væru þau að þetta kostaði peninga. Ég vil ekki sitja undir því að ég sé að taka út 6. gr. til þess að spara fyrir hið opinbera eða spara á fötluðum. Það er ekki ástæðan fyrir því að ég lagði til ásamt öðrum í meiri hluta nefndarinnar að þetta yrði tekið út, heldur eins og segir reyndar í nál., með leyfi forseta: ,,Sjá má af mörgum umsögnum að menn óttast þá miðstýringarþjónustu sem í ákvæðinu felst. Umsagnaraðilar láta og í ljós efasemdir um gildi göngudeildar fullorðinna á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.`` Og svo segir: ,,Í ljósi þessa þykir ekki rétt að stofnað verði til slíkrar deildar, einkum þegar haft er í huga að hún hefði talsverð útgjöld í för með sér.``
Á það var bent af þeim sem við okkur töluðu að þessir fjármundir mundu nýtast betur úti í héraði þar sem betur væri hægt að meta hvaða störf þar væri um að ræða fyrir fullorðna fatlaða einstaklinga, þannig að það væri nær heldur en hafa þetta inn í Greiningarstöð ríkisins hér fyrir sunnan.