Málefni fatlaðra

149. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 14:10:21 (6875)


     Kristinn H. Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Ég legg hér að Framkvæmdasjóði verði með sama hætti heimilt að veita lán til stofnana sem upp eru taldar í 3. tölul. eins og öðrum. Það verði því ekki gert upp á milli sveitarfélaga annars vegar og félagasamtaka og sjálfseignarstofnana hins vegar.
    Ég vil líka vekja athygli á ákvæði í 41. gr. sem ég flyt reyndar ekki brtt. um að sinni, það er 5. tölul. Ég tel hann mjög varasaman en það mun ég fjalla um síðar.