Kristinn H. Gunnarsson
:
Virðulegi forseti. Mig langar aðeins til að vekja athygli á því svo ljóst sé að í greininni stendur: ,,Ferðir fatlaðra til og frá þjónustustofnunum skv. 1.--5. tölul. 10. gr. . . . `` Nú er búið að fella út 4. tölul., þjónustumiðstöðvar, svo 5. tölul. er ekki lengur leikfangasafn eins og stendur í frv. heldur það sem áður var 6. tölul. og heitir skammtímavistun. Ég skil greinina þannig að 52. gr. eigi við það sem er í handritinu 1.--6. tölul. Ég vil gjarnan að hafi meiri hlutinn aðra skoðun að það komi fram en að öðru leyti styð ég þetta.