Svavar Gestsson :
Virðulegi forseti. Menn geta auðvitað deilt um það hvað orðalagið ,,allt í uppnámi`` þýðir. En þegar það er viðurkennt af meiri hlutanum að það þurfi að endurskoða milli 10 og 20 atriði í frv. á milli umræðna, þá veit ég ekki hvaða nafn menn vilja nota um afgreiðslu mála að öðru leyti hér á hv. Alþingi. Það er alveg augljóst mál að menn verða að vanda sig miklu betur og málefni fatlaðra er ekki með þeim hætti að það sé í raun og veru leyfilegt eða siðlegt að kasta til þess höndunum.
Ég bendi á að í upphafi þessarar atkvæðagreiðslu sagði hv. 14. þm. Reykv. að á því væru meinbugir að taka málið fyrir, m.a. af tæknilegum ástæðum. Það kom mjög skýrt í ljós í atkvæðagreiðslunni þannig að allur þingheimur veit nú hvað hv. 14. þm. Reykv. átti við með orðum sínum og þau hafa reynst vera rétt. Það hefur komið í ljós í umræðunum hér. Þess vegna er auðvitað mjög brýnt, virðulegi forseti, að á málinu verði tekið í félmn. með afar skýrum hætti og ég skora á nefndina að vanda sig.