Skattskylda innlánsstofnana

149. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 16:58:38 (6904)


     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil benda hæstv. fjmrh. á að þótt við í stjórnarandstöðunni kæmum með útfærðar tillögur um það hvernig hæstv. ríkisstjórn á að leggja á skatta mundi það tæplega þýða neitt frekar en önnur frv. og þáltill. sem við höfum verið að leggja fram í þinginu og hafa ekki fengið afgreiðslu.