Höfundalög

149. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 17:55:15 (6909)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég vil einungis lýsa yfir ánægju minni með að þetta mál kemst á dagskrá og ég vona að það fái skjótan framgang.
    Ljóst er að í höfundalögunum er að finna margar og mikilvægar breytingar sem munu tryggja betur rétt höfunda og þeirra sem fara með höfundarrétt. Ég vona því að þetta gangi mjög skjótt fyrir sig og ekki mun standa á okkur kvennalistakonum að sjá til þess að málið fái góðan framgang.