Heilbrigðisþjónusta

149. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 18:03:28 (6916)

     Frsm. heilbr.- og trn. (Sigbjörn Gunnarsson ) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti heilbr.- og trn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 97 frá 1990, um heilbrigðisþjónustu.
    Nefndin hefur fjallað um frv. Efni þess er samhljóða reglugerð heilbr.- og trmrh. frá því í desember 1991, þ.e. að gjöld skuli ekki tekin fyrir ungbarnaeftirlit og mæðravernd. Því er nefndin samþykk. Nefndin telur að ákvæði um þetta efni eigi fremur heima í lögum um almannatryggingar en í lögum um heilbrigðisþjónustu.
    Með hliðsjón af því að nú er verið að endurskoða lög um almannatryggingar telur nefndin rétt að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar, enda verði stuðst við álit nefndarinnar varðandi þetta efni við þá endurskoðun.
    Undir þetta nál. rita Sigbjörn Gunnarsson, Svavar Gestsson, Finnur Ingólfsson, Guðmundur Hallvarðsson, Sigríður A. Þórðardóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ingibjörg Pálmadóttir, Lára Margrét Ragnarsdóttir og Björn Bjarnason.