Kolbeinsey

149. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 18:31:53 (6928)

     Steingrímur J. Sigfússon :
    Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð. Ég þakka hv. samgn. fyrir vinnuna að þessu máli og fagna því að samstaða hefur tekist um að afgreiða það á þessu þingi. Ég bind vonir við það og við flm. allir að í framhaldinu verði gripið til raunhæfra aðgerða gagnvart þessu máli, þeirri stöðu sem þarna er uppi. Það er mikilvægt og stórt hagsmunamál Íslendinga, sjávarútvegsins og reyndar allra landsmanna að þessu máli verði sinnt og ég leyfi mér því að fagna því alveg sérstaklega að hv. samgn. hefur komist að þessari niðurstöðu og lagt til við þingið að tillagan verði afgreidd hvað vonandi gengur eftir.