Virðulegi forseti. Nú er komið að því að fara að ræða ýmis frumvörp sem ætlunin er að afgreiða að manni skilst fyrir lok þingsins en á þeirri dagskrá er ekki frv. sem hæstv. ríkisstjórn er skyldug að flytja hér á Alþingi í samræmi við það fyrirheit sem hún gaf í síðustu kjarasamningum.
Í síðustu kjarasamningum gaf ríkisstjórnin það fyrirheit að breytingar yrðu gerðar á áformum ríkisstjórnarinnar um greiðslu ríkisábyrgðar á launum og mér er kunnugt um að síðustu sólarhringa og í dag hafa forustumenn samtaka launafólks reynt að knýja á um það að hæstv. ríkisstjórn flytji lagafrv. á Alþingi til að ótvírætt sé gengið frá þessu fyrirheiti ríkisstjórnarinnar í síðustu kjarasamningum. Ég vil þess vegna áður en lengra er haldið inna forustumenn ríkisstjórnarinnar eftir því: Hvenær er að vænta að það frv. verði lagt fram? Það hefur verið rætt um að þingi ljúki kl. 3 á morgun og það er þess vegna aðeins rúmur hálfur sólarhringur eða svo eftir og ef þingið á að afgreiða þetta frv. þá er nauðsynlegt að það fari að koma fram, ella stæðu menn frammi fyrir því að ein af forsendum sáttatillögu sáttasemjara ríkisins væri brostin.
Ég vænti þess að ríkisstjórnin ætli ekki að ganga á bak þessara orða sinna að efna þetta fyrirheit um að tryggja að ríkisábyrgð á launum verði með þeim hætti sem heitið var í kjarasamningunum. Ég reikna með því að ekki muni standa á okkur í stjórnarandstöðunni, án þess að við höfum haft tækifæri til þess að ræða það okkar í millum á þessum síðustu mínútum, að greiða fyrir því að það frv. verði að lögum en til þess þarf það að koma fram. Mér er ekki kunnugt um að hæstv. ríkisstjórn hafi í dag eða kvöld minnst á það í viðræðum sínum við stjórnarandstöðuflokkana að hún hyggist flytja þetta frv. Ég vil þess vegna áður en lengra er haldið, virðulegi forseti, árétta að í fyrsta lagi þarf frv. ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð á launum að vera flutt og í öðru lagi þarf að tryggja það í störfum þingsins í kvöld og nótt og í fyrramálið að það frv. verði afgreitt sem lög frá Alþingi til þess að þau fyrirheit sem ríkisstjórnin gaf samtökum launafólks í kjarasamningunum verði ekki svikin.
Ég árétta því nauðsyn þess að þetta frv. komi fram sem fyrst og einnig þá skoðun mína að sjálfsagt verði greitt fyrir því þegar það kemur fram að það verði afgreitt. En ég vil inna forustumenn ríkisstjórnarinnar eftir því hvenær þeir ætla að leggja þetta frv. fram svo að við getum tekið mið af því í störfum okkar, sem eru nú að hefjast um önnur þingmál, að nauðsynlegt er að afgreiða þetta stjfrv.