Lífeyrissjóður sjómanna

150. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 22:48:37 (6963)

     Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Kristín Ástgeirsdóttir) :
    Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. minni hluta efh.- og viðskn. á þskj. 997. Okkur tveimur nefndarmönnum, þ.e. Steingrími J. Sigfússyni og þeirri sem hér stendur, fannst að við gætum ekki borið ábyrgð á afgreiðslu þessa máls eins og það ber að og þá einkum og sér í lagi vegna hins skamma tíma sem nefndin hafði til að kanna þetta mál. En nál. er svohljóðandi:
    ,,Á allra síðustu dögum þingsins fékk nefndin til umfjöllunar breytingu á lögum um Lífeyrissjóð sjómanna. Breytingartillögurnar eru komnar frá stjórn sjóðsins vegna þeirrar slæmu stöðu sem sjóðurinn stendur frammi fyrir. Breytingarnar eru margar og má þar nefna að verið er að bæta stöðu sambýliskvenna sjómanna, en sjóslys sl. vetrar leiddu í ljós að úrbóta var þörf. Veigamestu breytingarnar fela þó í sér að örorkulífeyrir til sjóðsfélaga og lífeyrir til barna þeirra verður skertur verulega. Að sjálfsögðu fá þessir hópar áfram bætur úr tryggingakerfinu, en það breytir ekki því að í allmörgum tilfellum verður um verulega skerðingu að ræða. Af hálfu sjóðsins er um neyðarúrræði að ræða þar sem útstreymi úr sjóðnum er meira en þær greiðslur sem til hans renna. Sú breyting, sem hér er verið að gera, dugar þó hvergi nærri til að bæta stöðuna, enda eru fleiri aðgerðir til umræðu.
     Það er mjög brýnt að taka stöðu lífeyrissjóðanna í landinu til rækilegrar athugunar, enda ljóst að margir þeirra munu standa frammi fyrir miklum erfiðleikum á næstu árum, auk þess sem réttindi fólks eru afar misjöfn. Málefni Lífeyrissjóðs sjómanna þarfnast sérstakrar endurskoðunar enda hefur hann um margt sérstöðu. Sjóslys og vinnuslys eru því miður allt of algeng hér við land sem veldur því að miklar bætur eru greiddar úr lífeyrissjóðum sjómanna. Þá má nefna að sjómenn geta hafið töku lífeyris 60 ára að aldri. Það þarf að kanna í samráði við andstandendur sjóðsins hvort ekki eigi að afnema lögin um sjóðinn þannig að hann falli undir þann lagaramma sem gildir um flesta lífeyrissjóði landsins. Þannig væri það fyrst og fremst á valdi sjóðstjórnar og eigenda sjóðsins að ráða stefnunni í stað þess að þurfa að leita til Alþingis á tímum mikilla breytinga og vanda sem blasir við sjóðnum.
     Þær breytingar, sem frumvarpið um Lífeyrissjóð sjómanna gerir ráð fyrir, snerta afar viðkvæm mál þar sem um afkomu fjölda einstaklinga og fjölskyldna er að ræða. Á þessum vetri hafa sjómenn orðið fyrir verulegum áföllum, annars vegar vegna aflasamdráttar, hins vegar vegna margfaldra árása ríkisstjórnarinnar á kjör þeirra. Samdráttur í tekjum sjómanna gerir Lífeyrissjóði sjómanna að sjálfsögðu erfiðara að standa við skuldbindingar sínar. Undirrituð draga ekki í efa að sjóðstjórn þarf að grípa til aðgerða, en þar sem málið hefur fengið afar litla umfjöllun í nefnd og ekki hefur gefist ráðrúm til að ræða við samtök sjómanna eða þá sem málið snertir treysta undirritaðir nefndarmenn sér ekki til að bera ábyrgð á afgreiðslu þessa máls og munu því sitja hjá við afgreiðslu þess.``
    Eins og ég nefndi fyrr, herra forseti, þá rita undir þetta nál. Steingrímur J. Sigfússon og Kristín Ástgeirsdóttir.
    Því er við þetta að bæta að þær breytingar sem nú er verið að gera á Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins munu leiða til þess að lífeyrissjóðir sjómanna fá allverulegar fjárhæðir til sín sem væntanlega munu breyta nokkuð hinni erfiðu stöðu sem a.m.k. Lífeyrissjóður sjómanna er í. Það verður vonandi til þess að sú skerðing sem fyrirhuguð er á örorkubótum, örorkulífeyri og barnalífeyri verði eitthvað minni en til stendur. Vonandi verður hægt að komast hjá skerðingu. En hér er kannski um dæmi að ræða þar sem verið er að gera alþingismönnum að taka ábyrgð á gerðum aðila úti í bæ sem mér finnst að við ættum í rauninni ekki að vera ábyrg fyrir heldur þeir sem málið snertir og þeir sem taka slíkar ákvarðanir. Þess vegna er bent á það í nál. að það væri rétt að huga að stöðu þessa sjóðs og hvort hann eigi ekki að falla undir þann lagaramma sem gildir um lífeyrissjóðina.
    Við munum sitja hjá við afgreiðslu þessa máls, herra forseti.