Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir það að fá að komast að en ég fylgdist grannt með því þegar menn báðu hér um orðið. Ég var þriðji í röðinni þegar ég bað um orðið, og ég sá að sá sem sat á forsetastóli var sæmilega vakandi, svo einkennilega er nú farið með fundarstjórn þessa fundar. Það er kannski nóttin sem þreytir menn. Ég veit það ekki.
Mig langar aðeins til að segja hér örfá orð um þessa flugmálaáætlun. Auðvitað veldur hún vonbrigðum. Ég ætlaði satt að segja, þegar ég bað um orðið í upphafi, að gera athugasemd við þá brtt. sem hæstv. samgrh. lagði fram í sambandi við Hornafjörð. Ég skil ekki ástæðu þess að ráðherrann skyldi leggja tillöguna fram og ég dreg í efa, vegna þess að ég veit að hæstv. ráðherra er greindur maður, að það hafi verið þinglegt að leggja tillöguna fram. Það segir í brtt. á þskj. 908 um Hornafjörð að tækjageymsla fái 5 millj. kr. og flugbraut, þverbraut, 5 millj. kr. Í nál., sem komið var fram, stendur einmitt um þennan sama flugvöll, ég held að við séum örugglega að tala um sama flugvöllinn, tækjageymsla, þverbraut, 10 millj. kr. Það er sem sagt nákvæmlega sama upphæðin sem er verið að tala um til nákvæmlega sama framkvæmdarþáttar. Það væri fróðlegt að fá upplýsingar um það hvað lá eiginlega að baki því að þetta kom fram? Nú hlýtur ráðherra að hafa verið kunnugt um það hvað kom frá meiri hluta nefndarinnar í þessum efnum.
Ég vil segja það einnig að ég harma það hversu lítil vinna hefur raunverulega farið fram í samgn. um þennan veigamikla þátt sem eru samgöngumálin, ekki bara í sambandi við flugmálin, nákvæmlega það sama á við um vegamálin.
Auðvitað eiga þessar nefndir þingsins að koma miklu meira að þessum málum en gert hefur verið. Það hefur nánast sáralítil umræða farið fram í nefndinni við flugmálayfirvöld um framkvæmd og uppbyggingu flugvallanna. Það er auðvitað mjög miður. Það er heldur enginn vafi að það vantar mjög mikið fjármagn til að geta búið flugvelli landsins þannig að viðunandi sé. Ég held að engum blandist hugur um að svo sé.
Við gengum nokkuð stíft á meiri hluta samgn. um það hvort ekki væri möguleiki að koma þarna inn einhverju fjármagni til að leysa úr sárum vanda sem var á nokkrum flugvöllum. Það var alltaf sama viðkvæðið að það væri ekki um neitt slíkt að ræða. Auðvitað ber okkur, og ég hélt satt að segja að með breyttum þingsköpum ættu nefndirnar að verða miklu virkari en áður var, að horfa meira til framtíðar í umfjöllun um þessi mál og skoða þau í stærra samhengi. En þá er þveröfugt farið að. Það var þó í fyrri áætlun litið til ársins 1995 en nú hafa menn ekki einu sinni kjark í sér til að horfa til ársins 1995 heldur aðeins til ársins 1993. Það er nú allt og sumt. Það fjármagn sem var þó inni á árunum 1994 og 1995 er algerlega þurrkað út.
Til að sýna fram á það hvað hér er verið að tala um og hvað þetta er sorglega lítið fjármagn sem fellur til hinna ýmsu flugvalla get ég tekið dæmi. Ef ég lít t.d. á Norðurl. v., sem ég er fulltrúi fyrir, þá eru þar þrír flugvellir, þ.e. Siglufjörður, Sauðárkrókur og Blönduós. Á þessu tímabili, sem áætlunin tekur til nú, er áætlað að verja til uppbyggingar á þessum þremur flugvöllum 8,2 millj. kr. Það er það sem áætlað er að verja til flugvalla í Norðurl. v. ( Gripið fram í: Það er allt og sumt.) Já, það er allt og sumt. ( Gripið fram í: Hvaða kjördæmi er það?) Ég er búinn að segja það tvisvar eða þrisvar, ágæti þingmaður, en ég get endurtekið það. Það er í Norðurl. v. Þangað eiga að fara af miklum raunarskap 8,2 millj. kr. á þessu áætlunartímabili. Ég hef ekki lagt saman hvað fer í önnur kjördæmi en mikið er fénu misskipt.
Ég hefði haft gaman af að fjalla ítarlegar um þessi mál, um uppbyggingu flugvallanna og þjónustuhlutverk þeirra og ekki síður um öryggisþátt flugsins. Ég hefði haft mikla ánægju af því að eiga orðastað við hæstv. samgrh. um þann þátt. En það er eins og annað sem maður hefði haft áhuga á að ræða hér
að það gefst ekki tími til þess. Þessi mikilsverða umræða um samgöngumál er tekin hér til umræðu þegar klukkan er þrjú að nóttu. Einhvern tímann hefðu menn gert þessum málaflokki hærra undir höfði, hæstv. samgrh., en nú er gert. Ég vona að Eyjólfur eigi eftir að hressast og að menn geti rætt flugmálaáætlun undir betri kringumstæðum en nú eru og að hæstv. samgrh. bjóði okkur þá upp á það líka að fá að spjalla um hærri upphæðir en við erum nú að tala um því eins og ég dró hér fram áðan eru þær nú svo sáralitlar að um þær er varla ástæða að ræða.
En ég ætla, virðulegur forseti, ekki að lengja þetta mál. Ég hef orðið fyrir vonbrigðum með það hvernig þetta hefur verið unnið. Það getur vel verið að meiri hluti nefndarinnar hafi setið títt á fundum með yfirmönnum flugmála til að reyna að komast út úr þessu tveggja ára tímabili ( Gripið fram í: Með flugráði?) Með flugráði og flugráðsmönnum, ég þekki það ekki en alla vega var okkur ekki boðið upp á það. Ég tel það mjög miður og reyndar átel að ekki skuli hafa verið gefinn rýmri tími til að fjalla um þessi mál. ( Gripið fram í: Átti ekki Norðurl. v. mann í flugráði?) Ég held að Norðurl. v. eigi ekki mann í flugráði, ekki svo ég viti til. ( Gripið fram í: Átti.) Það er allt annað mál hvað menn áttu. En það er kannski ástæðan fyrir því að upphæðin er ekki hærri, við áttum hann en eigum hann ekki. Það gæti verið. En ég hef ekki trú á því að það sé ástæðan fyrir þessu með Norðurl. v. Ég hef ekki lagt saman önnur kjördæmi svo ég get í sjálfu sér ekki verið að gera neinn samanburð á því. Maður lítur gjarnan heim til sín og leggur saman tölurnar og þá kemur þetta út hjá okkur. Ég veit hins vegar að . . . ( Gripið fram í: Algjör hungurlús.) En eins og ég segi, virðulegi forseti, ég skal ekki lengja þetta.
Eitt vil ég segja að lokum. Þessi umræða hlýtur auðvitað að þurfa að takast upp mjög fljótlega aftur, ekki bara í nefndinni heldur einnig hér í Alþingi. Vegna þess að við höfum átt orðastað áður um uppbyggingu flugvalla á landinu, ég og hæstv. núv. samgrh., vil ég á betri stundu en nú eiga við hann orð um uppbyggingu flugvalla og framtíð flugs hér á landi. ( Gripið fram í: Er ekki rétt að gera það bara strax í fyrramálið?) Ég væri tilbúinn til þess og ég er prýðilega vel vakandi nú og þess vegna gæti ég það. En mér hefur verið sagt það í allt kvöld og í nótt að yfirleitt megi menn helst ekki tala hér. En ég get svo sannarlega talað langt mál um það við hæstv. samgrh. ( Gripið fram í: Ætti það að vera varaflugvöllur?) Ég átta mig ekki á því hvort hv. þm. var að spyrja mig eða ráðherrann um varaflugvöllinn. ( Gripið fram í: Þig.) Mér er ókunnugt um varaflugvöll, mér er ókunnugt um það. Ég held að engin ákvörðun hafi verið tekin um það. Hins vegar væri fróðlegt að heyra um það. Við erum svo heppnir að hafa hér hæstv. samgrh. og svo höfum við hér líka fyrrv. samgrh. ( Gripið fram í: Og kannski tilvonandi.) Já, ég sé að þeir eru hér félagarnir sem sjálfsagt keppast um það hlið við hlið ef brauðið skyldi losna. ( Forseti: Forseti vill biðja hv. þm. að gefa hv. ræðumanni hljóð.) Mér líður best í umræðunni þegar hún gengur svona fyrir sig. Einhvern veginn er það nú svo. Þeir trufla mig ekki mikið. Ég hefði haft gaman af því að bæta hæstv. fyrrv. samgrh. við til að ræða um uppbyggingu flugvallanna og varaflugvallarmálið því það er ævintýri líkast hvernig það hefur gengið fyrir sig. Og það er svo merkilegt að lesa tillöguflutning þessara tveggja ráðherra, hæstv. núv. og hæstv. fyrrv. samgrh. um þau mál að þingið mundi örugglega vakna og skemmta sér vel ef ég færi að lesa það allt saman upp í kvöld.