EES-samningurinn og fylgiefni hans

151. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 10:55:05 (7028)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég kveð mér ljóðs um þingsköp til þess að vekja athygli á þeirri staðreynd að nú eru aðeins sex og hálfur tími frá því að síðasta þingfundi var slitið hér í nótt. Þá hafði fundur staðið frá klukkan tíu fyrir hádegi eða í 18 tíma með stuttum hléum. Fyrir utan það höfðu þó nokkrir þingmenn verið á nefndarfundum frá því klukkan 8 um morguninn. Ég tel það ámælisvert og brot á lögum um eðlilegan vinnu- og hvíldartíma að standa þannig að málum.