Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

151. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 13:44:28 (7062)

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Mér þykir það miður, líkt og síðasta ræðumanni, að ekki skuli komast á dagskrá Framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um jafnrétti kynjanna. Ég hef lagt áherslu á það, líkt og síðasti ræðumaður. En vegna beiðni hennar um að þessi áætlun, þó að hún hafi ekki verið rædd, fari til umsagnar ýmissa aðila sem hún nefndi þá er sjálfsagt að verða við þeirri ósk.