Málefni fatlaðra

151. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 16:47:31 (7079)

     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 2. þm. Vesturl., þetta er sjálfsagt alveg rétt hjá henni. Það er von að syfja sé farin að sækja á þingheim og hann orðinn lítið eitt ruglaður. En ég skal taka þessa leiðréttingu til greina, hún er áreiðanlega alveg rétt. En eftir stendur, þegar við tölum um þær réttarbætur sem verið er að gera, að þær verða engar fyrr en fé er veitt til þeirra hluta sem gera skal.