Ábyrgðasjóður launa vegna gjaldþrota

152. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 19:13:55 (7112)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Kannski er það frekar samsvar en andsvar sem ég ætla að veita. Ég vil geta þess vegna þess að ég gerði það ekki að umtalsefni í ræðu minni að ég tek undir furðu þess þingmanns sem flutti mál sitt áðan á því hvers vegna í ósköpunum ríkisstjórnin treystir sér ekki til að flytja þetta frv.