Ábyrgðasjóður launa vegna gjaldþrota

152. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 19:19:29 (7115)

     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil bara spyrja hæstv. ráðherra: Hvenær var það rætt í félmn. að hún flytti þetta frv.? Ég frétti fyrst af því í nótt, á þessum sólarhring sem nú er að líða. Hvað er langt síðan kjarasamningar voru gerðir?