Ábyrgðasjóður launa vegna gjaldþrota

152. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 19:29:44 (7122)

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Síðasti ræðumaður telur sig ekki hafa fengið fullnægjandi svör við því af hverju ríkisstjórnin hefði ekki flutt þetta mál. Sú skýring kom fram hér áðan að þetta er flutt með sama hætti og

frv. um breytingu á lögum um Atvinnuleysistryggingasjóð sem er hluti af kjarasamningum. Það frv. flutti heilbr.- og trn. og þá var engin athugasemd gerð við þá málsmeðferð.