Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það var satt að segja lítið um svör hjá hæstv. forsrh. Mér fannst að vísu nokkuð skemmtilegt að sjá hvað hann var orðinn ánægður með þennan nýja skatt og stoltur af króganum sem hann hafði komið til nokkurs þroska og gefið líf. Það er gaman að sjá hæstv. forsrh. Davíð Oddsson svo ánægðan með nýju skattana sína.
Ástæðan fyrir því, hæstv. forsrh., að ég endurflutti frv. ekki, sem ég hefði getað gert, ég hefði getað endurflutt það 1989 og 1990 og reyndar 1991 einnig, var að ég sannfærðist af ýmsum þeim rökum sem hv. þm. Sjálfstfl. fluttu í þinginu á þeim tíma. Þá var sú tíð að ráðherrar hlustuðu á röksemdir stjórnarandstöðunnar og tóku dálítið mark á þeim. En ég hef ekki enn þá fengið neinar skýringar á því hvers vegna Sjálfstfl. skipti um skoðun.
Það sem hæstv. forsrh. sagði um tekjuskattinn var auðvitað stórfurðulegt. Hann heldur því fram að breytingar á útgreiðslum í tekjuskattinum til einstaklinganna, þannig að ríkissjóður heldur eftir meiru hjá sér, sé ekki skattahækkun. Ég hef aldrei heyrt svona kenningu fyrr og ég var helst að velta því fyrir mér undir þessum flutningi hæstv. forsrh. að kannski tryði hann þessu sjálfur að það væri t.d. hægt að breyta persónuafslættinum og breyta barnabótunum og breyta sjómannaafslættinum og það væru alls ekki skattahækkanir, t.d. afnema barnabæturnar algerlega og afnema sjómannaafsláttinn algerlega og afnema persónuafsláttinn algerlega og það væri engin skattahækkun. Með sams konar rökum og hann flutti er hægt að komast að þeirri niðurstöðu. Hins vegar treysti hæstv. ráðherra sér greinilega ekki til þess að útskýra hvers vegna verið er að leggja milljarð í nýjan skatt á sjávarútveginn og krefjast þess svo að fá að borga út úr Verðjöfnunarsjóðnum rúma 2 milljarða. En það er kannski von að hæstv. forsrh. treysti sér ekki til þess að útskýra samhengið í því.