Virðulegi forseti. Hér hófst fundur í gærmorgun kl. 10 og hann stóð til kl. 4 sl. nótt. Þá hófst aftur fundur kl. 10.30 og hann hefur staðið látlaust síðan án þess að hádegisverðarhlé eða kvöldverðarhlé hafi verið gefið.
Ég vil greina frá því að formaður þingflokks Framsfl., Páll Pétursson, kom til mín rétt fyrir kl. sjö og tjáði mér að það hefði orðið samkomulag um að frv. um ábyrgðasjóð launa yrði tekið til umræðu og síðan yrði gert hlé til kl. níu. Með það fór þingmaðurinn úr húsinu. Ég trúði þessum orðum og treysti,
spurði hins vegar forsetann rétt áður en ég fór úr húsinu hvað ætti að gera hér og var þá tjáð að það ætti bara að halda áfram sem líka hefur komið á daginn.
Ég verð að segja, virðulegi forseti, að ég er eiginlega hættur að skilja hvað er hér að gerast eða hvaða venja eða háttur er hafður á samskiptum manna hér. Ég hef enga ástæðu til að rengja hv. þm. Pál Pétursson og kannski eru einhverjir hér í salnum sem kannast við að hafa rætt við hann um slíkt samkomulag. Tilgangurinn var að þeir þingmenn, sem hafa setið hér meira og minna látlaust og sinnt þingstörfum, gætu komist frá í einn eða einn og hálfan tíma eða svo. Það var greinilega ekki gert. Nú á að fara að byrja hér atkvæðagreiðsla og það merst kannski að hér sé helmingur þingmanna. Það kannski merst að helmingur þingmanna sé í húsinu. Það er þó langt undir því að stjórnarliðið sé hér með nægilega tölu til að fara í atkvæðagreiðslur og ég hugsa að það sé nokkuð stór hópur þingmanna sem hefur ekki gert sér grein fyrir því að haldið hefur verið áfram látlaust og farið í atkvæðagreiðslur.
Ég vil þess vegna mælast til þess, virðulegur forseti, að áður en haldið verður áfram verði gert hlé í klukkutíma eða svo þannig að menn geti aðeins búið sig undir áframhaldið ef hér á að vera fundur í kvöld og nótt. Það er satt að segja mjög óþægilegt að forsetadæmið skýri ekki út fyrir okkur þingmönnum hvað það hyggst fyrir. Við erum hér mörg sem höfum setið nánast látlaust í þingsalnum frá því klukkan hálfellefu í morgun og höfum ekki talið að við gætum vikið frá vegna þess að við höfum eiginlega ekki getað farið úr salnum, vegna þess að við höfum ekki hugmynd um hvað gerist næst. Hér eru ýmis mál sem sum okkar hafa þurft að tala í þótt við höfum talað stutt. Þetta er auðvitað, virðulegi forseti, ekki sæmilegt að koma svona fram við þingið. Við erum nokkur sem tökum starf okkar alvarlega þótt mér sýnist sumir í stjórnarliðinu ekki gera það.