Vegáætlun 1991--1994

153. fundur
Miðvikudaginn 20. maí 1992, kl. 00:43:29 (7159)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Með tilliti til orða hæstv. forsrh. áður um ríkisfjármál, nauðsyn aðhalds á því sviði og að forðast beri alla lausung í fjármálum ríkisins, þá vil ég spyrja hæstv. forsrh. hvort sá skilningur minn á ræðu hans hér áðan sé réttur að hann telji að samningur framkvæmdarvaldsins við eitt sveitarfélag í landinu upp á rúman milljarð rúmist innan þess heimildarákvæðis í 6. gr. fjárlaga sem hæstv. fjmrh. vitnaði til hér áðan.
    Ég gat ekki skilið hæstv. forsrh. öðruvísi og ég vildi gjarnan fá staðfestingu á þessum skilningi mínum.