Páll Pétursson
:
Frú forseti. Ég get ekki sagt að mér hafi komið á óvart þegar ég sá það tilkynnt á dagskránni að hér ætti að fara fram kosning þessara fulltrúa. Ég veit ekki betur en það séu a.m.k. tvær til þrjár vikur síðan hæstv. menntmrh., sjálfstæðismaðurinn Ólafur G. Einarsson, tilkynnti í fjölmiðlum að það yrði skipt um fulltrúa Alþfl. í menntamálaráði. Að sjálfsögðu ræður Sjálfstfl. hvaða fulltrúar Alþfl. sitja í menntamálaráði og væntanlega öðrum nefndum. Fyrrv. formaður menntamálaráðs fór ekki að lögum. Sjálfsagt hefur hún gert það í samráði við hæstv. menntmrh. Þau hengdu sig í ákvæði í heimildargrein fjárlaga sem að sjálfsögðu tekur ekki af lög. En varamaður Alþfl., sem tók sæti í ráðinu, áttaði sig á þessu og vildi ekki taka þátt í að sniðganga lögin með þeim hætti sem fyrrv. formaður gerði og efldi annan fulltrúa til formennsku í ráðinu. Fyrir það er nú verið að refsa henni og Alþfl. lætur Sjálfstfl. skipa sér að gera það og kjósa nýjan aðalfulltrúa. Það er að sjálfsögðu formlega séð á valdi Alþfl. að biðja um kosningu og velja annan fulltrúa. En þetta ber ekki að með þeim hætti að það hafi verið af sjálfsdáðum sem Alþfl. gerir það heldur vegna þess að Sjálfstfl. fyrirskipar honum að gera það og Alþfl. hlýðir. Það eru afar skýr skilaboð til þessa liðs frá Birtingu sem hefur þyrpst í Alþfl. hvernig það eigi að sitja og standa svo Sjálfstfl. þóknist því annars verði því refsað. Mér kemur ekki á óvart að þessi kosning skuli fara hér fram.