Varamenn taka þingsæti

6. fundur
Mánudaginn 14. október 1991, kl. 13:43:00 (149)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Varaþingmenn hafa nú undirritað drengskaparheit að stjórnarskránni og eru þau Jónas Hallgrímsson, Hjálmar Jónsson, Elínbjörg Magnúsdóttir, Einar Már Sigurðarson, Stefanía Traustadóttir og Kristín Sigurðardóttir öll boðin velkomin til starfa á Alþingi.